ABC kortið
Ashtanga vinyasa jóga
Einkatímar
Fréttir
Fyrirtækja jóga
Hatha jóga
Kennarar
Myndir
Jóga Nidra
Staðsetning
Stundaskrá
Verðskrá
Vinyasa jóga
Workshop/gestakennarar
Þú hefur svarið. Velgengni
 

ABC kort


Yoga Shala Reykjavík - einn af samstarfsaðilum ABC-kortanna.

Netbankinn, ABC-barnahjálp og Barnaland.is kynna samstarf sem kemur ungum fjölskyldum og bágstöddum börnum í heiminum til góða.

ABC-kortin eru þau fyrstu sinnar tegundar í heiminum. Með ABC-kortunum gefst fólki einstakur kostur á því að njóta viðtæks afsláttar og fríðinda sem taka mið af þörfum barnafjölskyldna og styrkja um leið börn víðsvegar um heiminn. Samstarfsaðilar ABC-kortanna eru öflugu fyrirtæki sem þjónusta barnafólk og eru leiðandi á markaði á sínu sviði.

ABC-kreditkort

Við stofnun ABC-kreditkortsins renna 1.000 kr. til ABC-barnahjálpar. Samstarfsfyrirtækin láta 1% af viðskiptum korthafa renna til ABC-barnahjálpar og veita einnig korthöfum góðan afslátt. ABC-kreditkort hentar því einkar vel til viðskipta við alla samstarfsaðila kortsins og þegar þú verslar við þessi fyrirtæki njóta fátæk börn góðs af. ABC-debetkort Við stofnun ABC-debetkorts renna 1.000 kr. til ABC-barnahjálpar. Öll færslugjöld af kortinu renna til ABC-barnahjálpar. Með því að nota ABC-debetkortið daglega gerir þú góðverk á hverjum degi. ABC-debetkortið hentar einkar vel til daglegs rekstur heimilisins og sýnir stuðning þinn við bágstödd börn í verki.

Samstarf til hjálpar bágstöddum börnum

ABC-barnahjálp, Netbankinn og Barnaland.is eru aðalsamstarfsaðilar ABC-kortanna. Auk þess njóta ABC-kortin sérstaks stuðnings öflugra samstarfsaðila. Samstarfsaðilar bjóða korthöfum sérstök vildarkjör og styrkja starfssemi ABC-barnahjálpar með því að láta 1% af viðskiptum ABC-kreditkorthafa renna til ABC.

ABC-barnahjálp

Starf ABC-barnahjálpar snýst um að bæta hag bágstaddra barna. Markmiðið er að veita yfirgefnum og umkomulausum börnum varnalega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þess er þörf, auk þess að njóta læknishjálpar, framfærslu og síðast en ekki síst umhyggju.