ABC kortið
Ashtanga vinyasa jóga
Einkatímar
Fréttir
Fyrirtækja jóga
Hatha jóga
Kennarar
Myndir
Jóga Nidra
Staðsetning
Stundaskrá
Verðskrá
Vinyasa jóga
Workshop/gestakennarar
Þú hefur svarið. Velgengni
 

Ashtanga vinyasa yoga byggist á seríum sem fólk lærir smá saman utan að.

Hver sería er sett saman af líkamstöðum asanas í ákveðinni röð sem styðja hvor aðra. Á milli asanas eru tengiæfingar/öndun eða vinyasa sem mynda ákveðið flæði og hita (moving meditation).

Ujjayi öndun er tengd við hverja hreyfingu og er eins og þráður í gegnum alla seríuna. Líkaminn hitnar og það myndast sviti sem hreinsar vöðva og líffæri.  

Útkoman er frábær.  Léttur, sterkur líkami, betra jafnvægi og hugarró.  

 

http://ashtanga.com/html/background.html

                   
Mysore style er ákveðin leið til að kenna ashtanga vinyasa jóga.  Hún er kennd við bæinn Mysore á Indlandi þar sem 

Sri.K. Pattabhi Jois býr í AYRI og kennir þessa aðferð til að læra jóga. 

Þessir tímar fara fram í þögn fyrir utan hljóð öndunarinnar.  Hver nemandi fer eins langt og geta hans, þol og reynsla segja til um.   Hver og einn fær einstaklingsbunda kennslu og bætir kennarinn við stöðu/æfingu eftir því sem styrkur, liðleiki og úthald eykst.  

Byrjendur og lengra komnir æfa saman í þessum tímum.  

Kennarinn sinnir hverjum og einum, leiðréttir eða færir nemendur dýpra inn í stöður ef við á.  

Þessi aðferð  kennir þér að flæða í takt við þína öndun, eftir þinni getu og líðan og öðlast meira sjálfstæði í stað þess að fylgja kennara eins og gert er í leiddum tímum. Jógað verður að þínu.  

Það er algengur misskilningur að fólk þurfi að vera komið langt í Ashtanga vinyasa jóga til að geta farið í Mysore tíma. Raunar má segja að Mysore tímar henti öllum sem lokið hafa byrjenda námskeiði &iactue; Ashtanga vinyasa jóga 

Í upphafi er byrjandi í ca 30 min og lærir fyrstu æfingarnar, suryanamaskara A og B.  Smá saman lengist tíminn eftir því sem fleiri stöðum er bætt við.   

Byrjendum er velkomið að horfa á.  

Við hvetjum fólk sem á blað með stöðunum að fara yfir þau heima og sleppa því að taka þau með í tíma. Það kemur á óvart hvers fljótt þetta lærist.  

Ef nemandi man ekki hvað kemur næst að  láta vita og kennarinn aðstoðar.

  

Byrjendanámskeið:
Farið er í helstu undirstöðuatriði í ashtanga vinyasa yoga: Öndun, stöður, og slökun. Farið er hægt og rólega af stað í fyrstu stöðurnar í seríunni og fundið út hvað hentar hverjum og einum.

Framhald 1:
tímar fyrir þá sem eru nýkomnir af byrjendanámskeiði eða eru að byrja aftur eftir hlé. Kennari leiðir tímann. 

Framhald 1-2:
Tímar fyrir fólk sem er orðið nokkuð öruggt með allar stöður fram að navasana (báturinn). Kennari leiðir tímann. 

 

botn