Stirðir Strákar - Tómas

Yoga fyrir Stirða Stráka

með Tómasi Oddi

Losun stífleika og aukin hreyfigeta!


Yoga fyrir Stirða Stráka með Tómasi er fyrir þá sen vilja læra undirstöðuatriðin í yoga og hentar herramönnum á öllum aldri. Námskeiðið miðar að því hjálpa mönnum að liðkast og styrkjast bæði líkamlega og andlega.


Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á góða samsetningu af öndun, flæðandi hreyfingum, djúpum teygjum, grunnstöðum, hugleiðslu og slökun. Fullkomin leið til að byrja daginn! Þá verða hagnýt heilræði úr yoga heimspekinni kynnt í byrjun hvers tíma.


Forsprakki og kennari þessa vinsælu námskeiða er Tómas Oddur Eiríksson en hann býr yfir 12 ára reynslu í faginu.


Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur (6 skipti alls) og fer fram á mánudags- og miðvikudagskvöldum.



Skráning á námskeiðið

HVAR:

Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.


FYRIR HVERJA:

Þá sem vilja kynnast jóga í öruggu rými og fá öryggi til að mæta í opna tíma.



KENNARI:

Tómas Oddur Eiríksson


TÍMABIL:

9. - 25. september


TÍMASETNING:

MÁN & MID kl. 20:00-21:30


Verð:

25.900 kr.


Þátttakendur í námskeiðinu fá frítt í opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur. Áskrifendur og árskortshafar fá 15% afslátt af verðinu.


Spurningar sendist á namskeid@yogashala.is


Tómas Oddur Eriksson frumkvöðull, náttúru og tónlistarunandi hefur bakgrunn úr sviðslistum og mannvistarlandfræðir og hefur yfir áratug af reynslu sem yoga, dans og hugleiðslu kennari. Tómas leiðir iðkendur í núvitund og hreyfingu af mikilli innlifun, hlýju og gleði.


Um þessar mundir stundar Tómas meistaranám í Dance Movement Pshychotherapy við UAB háskólann í Barcelona þar sem hann lærir að vinna með hreyfingu og dans sem meðferðarform.

Skráning á námskeiðið
Share by: