Tónheilun og reiki
Kolbrún og Danni munu leiða þig með innsæi og kunnáttu í gegnum djúpa heilun sunnudaginn 23. febrúar kl. 20:30. Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao drykk og áruhreinsun, þú finnur síðan ásetning fyrir komandi tíma, kemur þér vel fyrir og leyfir þér að gefa eftir og slaka á meðan Kolbrún og Danni heila þig með tónum og reiki.
Hvernig virkar heilunin? Það má segja að við skiptumst upp í orku-, tilfinninga- og efnislíkama. Í tónheilun fá allir líkamar þínir víbring og hreyfingu og endurhlaðast. Heilun með tónum hreyfir við staðnaðri orku, getur létt á verkjum og bætt svefn ásamt ótal fleiri jákvæðum breytingum sem hver upplifir á sinn einstaka hátt. Reiki er japanskt náttúrulækningakerfi og er heilun með snertingu*, þú leyfir orkunni að hreinsa burt staðnaða orku og hleypir öllu því sem þú þarft ekki á að halda úr efnis-, orku- og tilinningalíkama.
Kolbrún og Danni eru bæði tónheilarar og reikimeistarar og munu skapa einstaka nærandi stund fyrir líkama og sál. Á viðburðinum verða einnig aðstoðar reiki heilarar þeim innan handar til að gera upplifunina ennþá magnaðri. Það eins sem þú þarft að gera er að leyfa þér að gefa eftir og slaka á og njóta þess að taka á móti tónheilun og reiki.
*ath. ef þú vilt ekki fá snertingu getur þú þegið reiki á annan hátt.
HVAR:
Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
FYRIR HVERJA:
Alla sem vilja njóta tónheilunar og reikis og endurnæra sig
HVENÆR:
sunnudaginn
23. febrúar 2025
TÍMI:
20:30 - 22:00
Verð:
6.900 kr.
Áskrifendur fá 15% afslátt af viðburðinum. Spurningar: namskeid@yogashala.is